CPH to Africa, Australia, NZ and SE-Asia

fimmtudagur, júní 16, 2005

Broslegt

Eitt af því sem mér finnst skemmtilegt þegar ég er að ferðast með enskumælandi fólki er að uppgötva hvernig fólk notar sömu orðin í mismunandi merkingu. Hér koma tvö dæmi úr síðustu ferð:

Prufið að spyrja til vegar og fá þessar leiðbeiningar:

Ég:  Can you tell where I can find an internet cafe?
Kona:  Yes, just continue down this street. Pass the robot and then turn right.
Ég: Pass the robot?
Kona:  Yes, you can't miss it. And then turn right.
Ég:  Ok, thanks

Vissuð þið að í Suður Afríku þá er umferðarljós ekki kallað "traffic light" heldur "robot"? Nákvæmlega, þetta vissi ég ekki. Eins og þið getið kannski ímyndað ykkur þá sá ég aldrei neinn andsk.. robot og fann því ekkert internet cafe!!!
Það var ekki fyrr en mörgum dögum seinna að ég komst að því að umferðarljós væru kölluð robots og fattaði hvað konan hefði verið að meina.

Ég og nokkrir ástralir úr ferðinni sátum að sumbli á bar og vorum búin að drekka nokkra bjóra og aðeins orðin hífuð þegar ein stelpan segir allt í einu.

Karen: I think it's time for tea.
Ég:  Now?
Karen: Yeah
Ég:  Uh, ok. You can get tea but I think I will just stick with beer.

Vissuð þið að Ástralir (amk. frá S-Ástralíu) kalla kvöldmat ekki "dinner" eða "supper" heldur "tea"? Ég vissi það amk. ekki. Og þeim fannst alveg rosalega fyndið að ég skyldi ekki fatta að hún væri að tala um kvöldmat.